Færsluflokkur: Bloggar

Hauskúpunammi og dans aldarinnar!!!

http://www.youtube.com/watch?v=Mm1gBuEr7bk

Klárlega lag dagsins, vikunnar, jafnvel ársins, hressandi upplyfting og mæli ég með því að fólk æfi dansinn vel heima og sýni í næsta matarboði!!!!! Einstaklega gott lag og rífur upp stemninguna!!

Var að lesa framan á DV sá þar mann sem seigist eiga hauskúpuna frægu, hafi meira að seigja sofið með beinagrindina undir rúminu sínu í einhvern tíma, sem er nú nógu klikkað fyrir minn smekk, en það besta við þetta allt saman er að hann vill fá hauskúpuna aftur!!! Er það í boði? Held ekki Woundering

Er ég eitthvað skrýtin eða er þetta dulítið óhuggulegt mál, hugsiði ykkur, vera vistmaður á kleppi, deyja drottni sínum og hvað gerist, hauskúpan á þér er allt í einu orðin að nammiskál í einhverjum húsvagni á Laugarvatni og síðar í Kjósinni!!! Ef þetta er ekki tíminn til að ganga aftur, brjálaður!!

 


Þar kom að því að þessir aular seigja eitthvað af viti

http://kvikmynd.is/video.asp?land=&offset=0&id=3992

AAAAAAAAagalega fyndið, must see

Kanski verð ég brennd á báli ef einhver halelúja hetja kemst í þetta, but who cares? Er ég ekki hvort eð er að fara að brenna í helvíti? Skiptir þá máli hvenar? hmmmm....

Annars eru það svona spaðar sem brenna í helvíti á undan mér, þeir sjá það seinna, ég allavegana neita því að ég brenni í helvíti fyrir kynhneigð mína, það verður þá fyrir eitthvað annað, einhverja alvöru synd, ekki einhverja skapaða af páfanum!

 

Og svona að lokum, þeir sem þekkja til mín og minna..... eru þetta ekki bara ég og Elva búnar að æfa okkur í svona ehh..... mánuð!!

http://youtube.com/watch?v=kHjT-TEqLBs


Stelpnafræðarinn

Rakst á bók í hilluni hjá mér áðan, einhver arfleið frá systur minni, en það voru ekki ómerkari bókmenntir en stelpnafræðarinn sem var einhver allra mesta nauðsyn unglingsstúlku greinilega á sínum tíma, rosalega gaman og pínku kjánalegt að lesa en mæli aaaalveg með henni, sérstaklega "Hvernig á að klæða sig smekklega" kaflanum

Lenti í doldið (ó)skemmtileri lífsreynslu um daginn, var að njóta þess að sofa út í makindum mínum og allt í einu hringir síminn hjá mér og það er frænka mín, ég svara hálfsofandi í símann og frænka mín öskrar á mig, "ertu ekki að horfa á rúv kona? Það er þáttur um Kim Larsen" og ég svona "ehh.....ha já ég fer á fætur" og ég rýk inní stofu með slefið enn út á kinn og stýrur í augum, þar eru systir mín og Júlía að horfa á teiknimyndir, ég hendi barninu frá sjónvarpinu, ríf fjarstýringuna af systir minni skipti um stöð ooooooooog átta mig á því að ég á þáttinn á spólu og búin að horfa á hann hundrað sinnum, þetta var svona tilfinning eins og maður hafi vaknað allt of seint á alveg roooosalega mikilvægann fund....mjög óþæginlegt

Var að horfa á endursýningu á þættinum er grín G-vara, eða hvað hann heitir, og þó svo að þátturinn hafi nú verið svona og svona, þá fannst mér alveg rosalegt sannleikskorn í einu sem þar kom fram, en það er að Edda Björgvins eldist rosalega vel í gríni, þeas gamalt grín frá henni virðist alltaf vera fyndið, mín skoðun allavegana.

Tók fysta alvöru geðsveiflukastið mitt í dag á þessari meðgöngu minni, systur minn til mikillar gleði, ég toppaði systurdóttur mína aaaalgerlega í frekjuköstum í dag, þannig að hún þurfti að díla við okkur báðar, en það lagaðist allt þegar hún hafði matað mig á ruslfæði og leift mér að opna síðasta páskaeggið til að borða innan úr því, stelpugreyjið verður flutt úr landi áður en ég veit af, miðað við hvernig þetta var hér í gamla daga, þeas, þegar ég var barn var ég mikið í svæfingum og þar sem ég hafði farið í aðeins of margar, þá var geðvonskan í mér svo mikil alltaf ís vona þrjár vikur eftir hvert skipti að systkyni mín þurftu yfirleitt að fara að heiman

Ég sem er svo geðgóð......


Aðeins mildari

Ekki eins brjáluð og í fyrri færslu, var eitthvað orðin þreytt á þessu ástandi, aðeins of þreytt að sumra mati.

Sigga vinkona kom í mat í kvöld, mér tókst að kveikja í eins og nokkrum stykkjum af kínarúllum, átta mig á því að ég ætti ekki hrísgrjón og skítredda málonum með frönskum á alveg met tíma ofan í hana, henni fannst það fínt.....ég held að hún fái sjaldan almennilegann mat greyjið.

Eyjó er svo í mat á morgun, alltaf svo kósý að fá hann yfir, sérstaklega þegar ég get tekið endalausa "nú geturu ekki þetta eða hitt af því að við erum að fara að eignast barn" brandara á hann (hann á ekkert í þessu barni, en bregður alltaf jafn mikið, alveg óborgarlegt)

Mér fannst samt ekkert skemmtilegur tilgangur símtalsins sem ég fékk frá honum í dag, þetta var hans árlega "Eigum við ekki að fara að panta miða á Hróaskeldu?" símtalið, mér fannst hann ekkert fyndinn (verð að öllum líkindum að fæða eins og eitt stykki barn um þetta leiti)

En við ákváðum að skoða Rufus Wainwrigth tónleikana alvarlega í staðinn, þarf að fara að athuga með hvernig er að ná miðum, finnst eiginlega svindl að missa bæði af honum hér heima og svo Judas priest á keldunni, það er eiginlega pínku ómannúðlegt á minn hlut finnst mér.......

Hið árlega Raufarhafnardjamm á laugardaginn, aldrei datt mér í hug þegar ég staulaðist dauðadrukkin út af því síðasta að ég yrði edrú og ólétt á því næsta, en svona er lífið óútreiknanlegt

Annars skil ég ekki alveg tilganginn með þessu bloggi hjá mér, hef ekkert til að nöldra yfir, hef aldrei neitt að seigja nema að ég geti nöldrað aðeins, sjetturinn ef ég eignast mann, ætli hann geti farið í mál við mig seinna meir fyrir að ná honum ekki upp vegna stöðugs nöldurs eins og Ítalinn eða hvaðann hann var???? Bömmer


Ólétta er leiðinleg

Nokkrar ástæður þess að ég mæli með ættleiðingu:

Þegar þú ert ólétt ertu ljót.....alltaf, alveg sama hvað aðrir seigja þér, eða hversu fallegar þér finnst aðrar konur vera á óléttunni sinni, þú ert ljót og já ekki má gleyma hvít

Þegar þú ert ólétt (ekki fyrr) færðu að vita af alskonar aukakvillum sem enginn þorði að seigja þér frá áður, þannig að þú eyðir níu mánuðum í að naga neglurnar og biðja til guðs um að þú fáir ekki gyllinæð

Þegar þú ert ólétt koma litlir kallar inn á milli mjaðmana á þér og ýta þeim í sitthvora áttina, það er alveg hrikalega óspennandi

Það finnst öllum þú glötuð ef þú ætlar þér helst að vera svo dópuð að þú mannst ekki eftir fæðingunni, afþví að það er víst svo náttúrulegt að þjást, mig langar að elska barnið mitt takk fyrir en ekki horfa á það og minnast þess þegar ég ákvað að vera náttúruleg og vita af því þegar ég slitna í tvennt, ekki seigja þú gleymir þessu þegar barnið kemur, trúi því ekki fyrir fimmaura

Og talandi um að rifna í tvennt, ef þú skildir ekki vera svo heppin að rifna upp í rassgat í fæðingunni þá bara ertu bara klippt takk fyrir pent

Það sagði mér enginn að það væri bara alveg eðlilegt og meira að seigja happamerki takk fyrir að KÚKA Á SIG á meðan maður er að fæða, sexý!!

Þú ert alltaf þreytt og heldur að þú hafir það rosalega slæmt, en nei það er víst bara eðlilegt og enginn að fara að vorkenna þér fyrir það

Þú þarft að hlusta á það hvernig allar konur eldri en fimtugt unnu fram á síðasta dag meðgöngu, skelltu sér heim í hádeginu, unguðu út og mættu svo í vinnu eftir hádegi, mér er alveg nákvæmlega sama!

Þú færð eitthvað sem eitthvað fífl ákvað að kalla morgunógleði á fyrstu þrem mánuðum meðgöngu, það er kjaftæði, þetta er ekki rassgat bara á morgnana og þetta er ekkert búið eftir þrjá mánuði

Þú þarft að hætta að reykja, FRÁBÆRT!!! sleppum því eina góða sem þú hefur þá dagana

Annars er ég bara hress takk fyrir Smile

Eitt annað sem mér finnst alveg stórmerkilegt, það finnst öllum rosalega hneykslanlegt þegar ég segi að mér finnist óeðlilegt að konur neyðist til að fæða börn í dag, afhverju er maður ekki bara svæfður og krakkinn sóttur? Tæknin er til staðar, ef þú vilt endilega liggja eins og hvalur og spýta út úr þér einhverju barni þá þú um það, ég hef barasta engann áhuga á því takk

Svo að enginn misskilji mig, þá elska ég barnið sem ég ber undir belti, og hlakka einstaklega mikið til að eignast það, get eiginlega ekki beðið, en ég held ég ættleiði í næstu níu skipti, greinilega ekki gerð til að ganga með börn.... Ég er ekki fædd í gær, ég veit að þetta er allt ýkt hjá mér, varð bara að pústa dolitlu biturskasti

p.s. Nú ætlast ég til þess að þeir fáu bloggvinir sem lesa þetta seigi mér að ég sé bara víst falleg!!! Kittý.....Birkir......fleiri?


Hvað nú?

Ég hef doldið verið að fá viðbrögð við plötunni minni Petite Cadeau sem ég gaf út haustið 2005, einhver hefur verið að velta nafninu fyrir sér, nafnið kemur frá systurdóttur minni sem var skýrð daginn eftir Útgáfuna og heitir sú litla táta Júlía Líf Cadeau og þar sem hún var og er ljósið mitt þá skýrði ég plötuna eftir henni.

Það sem ég er mest hissa yfir eru viðbrögðin, ég vissi allann tíman að platan mín væri góð, ég hafði bara enga hugmynd um það að ég hefði átt einhvern þátt í því, á þessum tíma leit ég eiginlega ekki á mig sem tónlistarmann, heldur eiginlega bara svona....... stelpu sem slysaðist í Idol, tónlistaráhugamanneskju á háu stigi, ég hafði ekki hugmynd um hvað keppnin snerist þegar ég skráði mig í keppnina og svo einhvernveginn bara flaut ég með.

Ég hef líka fengið að heyra að fólk hefði viljað sjá frumsamið efni á plötunni, ástæðan fyrir því að það var ekki var einfaldlega sú að ég var ekki viss um að ég vildi gefa út plötu, vildi ekki vera Idol keppandi lengur, og svona horfði á ferilinn hjá fyrrum keppendum og sá að þetta var leiðin, gefa út sæmilega ábreiðuplötu og hverfa svo.

Í dag lít ég á mig sem tónlistarmann, ég hef rosalegann áhuga á tónlist, ég vil vinna við tónlist, og ég sé að sjálfsögðu að auðvita hefði ég átt að skella mér í djúpu laugina og senda frá mér frumsamið efni, en maður getur alltaf verið vitur eftir á er það ekki?

Eftir að ég gaf plötuna út, seldist hún eiginlega ekki neitt, ég og útgáfufyrirtækið vorum ekki alveg á sama máli, og satt að seigja var ég ekki að trúa því að ég gæti komist eitthvað áfram sem tónlistarmaður, ég einhvernveginn var bara rosalega sátt við að eiga þessa líka fínu plötu upp í skáp.... svona er maður skrýtinn.

Ég hef ákveðið að hætta þessari vitleisu, ég ætla að skoða lögin sem ég á, og svona kíkja eftir hvort ég eigi eitthvað af viti, því að guð veit að ég kýs ekkert frekar en að vinna við tónlist aftur.

Að lokum vil ég þakka Jens fyrir að kveikja ljósið í þröngsýna heilanum mínum, og eins þeim sem kommentað hafa á síðuna hans um mig, það er ótrúlega þæginlegt að lesa svona skrif um mann á síðu hjá manni eins og Jens sem veit um hvað hann er að tala.

Haha ég sagði við Markús sem tók við mig viðtal á Útvarp Sögu að ég myndi gefa út plötu þegar Sverrir Stormsker væri tilbúinn í að gera hana með mér, ég ætla ekkert að halda niðri í mér andanum yfir því hehe

Eitt enn þessi blessaði tónlistarspilari vill ekki taka við lögonum hjá mér af einhverjum ástæðum, þarf að fá tölvufróða manneskju til að aðstoða mig við þetta, því ég er eins og ég seigi oft "tæknilega þroskahömluð" og því ræð ég ekkert við þetta verkefni en um leið og ég finn einhvern til að grúska í þessu fyrir mig þá redda ég þessu, býður sig einhver fram???

Þannig að hér með óska ég eftir Umba, tónlistarmönnum og fyrst of fremst FJÁRMAGNI hehe til að skella saman í kokteil og dúndra fram plötu


Ég skrítin, eða þátturinn??

Var að horfa á þátt á ÍNN sem er einhver svona ný sjónvarpsstöð sem ég kíkji stundum á og hef oftar en ekki ansi gaman af, en ég verð að viðurkenna að áðan þegar ég var að horfa á þáttinn hjá Kolfinnu og Ásdísi sem samanstendur venjulega af nokkrum brjáluðum konum að gjamma hver ofan í aðra, (hreinlega elska brjálaðar konur) þá var ég aftur og aftur að grípa sjálfa mig við það að fara að gjamma ofan í þær og ræða við þær hérna úr sófanum hjá mér, á það til að gera þetta líka annaðslagið þegar ég horfi á Silfur Egils þó svo að ég hafi yfirleitt afar takmarkaða vitneskju um hvað gengur á í þeim þáttum, ætli það skrifist ekki á hversu illa upplýst ég er.... hmm.....

En allavegana ég mæli með þessum þáttum hjá stelponum á ÍNN, virkar fyrst eins og grúppa af fólki að öskra á hvert annað, en um leið og maður kemst inn í umræðuefnið þá er þetta ótrúlega skemmtilegur þáttur.

Eitt sem ég hef líka svolítið verið að spá í svona fyrst ég er að röfla um sjónvarp.... Eftir að ég varð ehh... í því ástandi að vera með vaxandi fóstur inni í leginu á mér, (alltaf jafn þjált) þá hefur skapast einhver leti í mér, og ég held mig yfirleitt heima hjá mér um helgar, afhverju í ósköponum er aldrei neitt í sjónvarpinu á föstudags og laugardagskvöldum, jújú það er alveg eitthvað í gangi svona fram undir það að það er búið að borða kvöldmat og koma gemlingnum á heimilinu í háttinn en svo situr maður uppi með hvað? FJANDANS BATCHELOR og eitthvað álíka uppbyggjandi og skemmtilegt sjónvarpsefni, eins og þátt sem samanstendur af einhverju fólki sem var saman í skóla fyrir guð má vita hvað mörgum árum síðan og er enn biturt út í þann sem það fór með á "promið" HVAÐ ER ÞAÐ???

Er bara alveg bannað að vera heima hjá sér um helgar nema að steikja á sér hausinn í lélegu raunveruleikasjónvarpi? Ég veit að þarna er ég kanski að kasta stein í glerhúsi þegar kemur að því að ræða raunveruleikasjónvarp en ég neita að trúa því að ég hafi verið SVONA lélegt sjónvarpsefni!!

Er hætt að nöldra


Nei nú verður maður að standa sig

Fékk nefninlega símtal áðan þar sem ég var boðuð í bloggþáttinn á útvarpi Sögu, ætli maður verði þá ekki að hafa sett eitthvað niður á veraldarvefinn til þess að teljast hæfur viðmælandi, annars er þetta nú ekki eina síðan sem ég hef dritað einhverju inn á en hitt er allt svo gamalt.

Það vildi svo skemmtilega til að Markús sem hringdi í mig frá Útvarpi Sögu, hafði séð plötuumsögn um plötu sem ég gaf út fyrir nokkrum árum síðan á bloggsíðunni hjá honum Jens stórbloggara og bið ég alla sem vilja fara og skoða þessa umsögn hjá honum á síðunni jensgud.blog.is þar sem ég er alveg einstaklega stolt af þeim dómum sem hann gefur mér. Allavegana þá biður þessi Markús mig um að koma til sín í viðtal á mánudagsmorguninn klukkan hálf átta, með plötuna í vasanum, ekki slæmt það svona mörgum árum seinna, enda verð ég alltaf stolt af þessari plötu.

Við systurnar vorum að velta því fyrir okkur í gær hvað ég gæti kallað það ástand sem ég er í þessa dagana og verð í eitthvað fram á sumar.

Málið nefninlega er að ég hef alltaf verið ólétt (þeas of þung)

Alltaf verið ófrísk (þeas mjög gallað eintak á alla kanta)

Oft er ég með barni (á systurdóttir sem ég eyði miklum tíma með, fyrir utan alla vinnu með börnum)

Oft er ég þunguð (á það til að þyngjast annaðslagið, óþægilegur fylgikvilli þess að vera feitur)

Og gott fólk sjaldan er ég nefninlega kona einsömul (er mjög sjaldan ein)

Við systur komumst að þeirri niðurstöðu að ég er með vaxandi fóstur í leginu, ekki alveg eins þjált og hin orðin eða setningarnar sem að koma til greyna en venst ótrúlega fljótt.

 

Jæja ætla að fara að finna mér eitthvað gáfulegt í gogginn, sem gæti samanstaðið af uppþvottalegi með smá "dashi" af t.d. lakkrís....... maður  er skrítinn í matarvali þessa dagana

 


Jæja á maður að prufa

Nú þegar þessa dagana þegar svona 60% af tölvunotkun minni felst í því að fylgjast með öðrum moggabloggurum þá fannst mér kanski pinku við hæfi að prufa og sjá hvernig fer.

Ég viðurkenni það fúslega að ég hef aldrei staðið mig vel sem bloggari hingað til en við skulum nú vona að það rætist aðeins úr mér í þetta skiptið.

Ætla að fara að leita mér af bloggvinum, er eitthvað svo einmana svona með tómann lista

 

 


« Fyrri síða

Um bloggið

Ylfa Lind Gylfadóttir

Höfundur

Ylfa Lind Gylfadóttir
Ylfa Lind Gylfadóttir

Þúsundþjalasmiður að eigin sögn og bráðverandi mamma

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • P1010395
  • P1010399
  • P1010398
  • 349.do
  • 346.do

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband