Nei nú verður maður að standa sig

Fékk nefninlega símtal áðan þar sem ég var boðuð í bloggþáttinn á útvarpi Sögu, ætli maður verði þá ekki að hafa sett eitthvað niður á veraldarvefinn til þess að teljast hæfur viðmælandi, annars er þetta nú ekki eina síðan sem ég hef dritað einhverju inn á en hitt er allt svo gamalt.

Það vildi svo skemmtilega til að Markús sem hringdi í mig frá Útvarpi Sögu, hafði séð plötuumsögn um plötu sem ég gaf út fyrir nokkrum árum síðan á bloggsíðunni hjá honum Jens stórbloggara og bið ég alla sem vilja fara og skoða þessa umsögn hjá honum á síðunni jensgud.blog.is þar sem ég er alveg einstaklega stolt af þeim dómum sem hann gefur mér. Allavegana þá biður þessi Markús mig um að koma til sín í viðtal á mánudagsmorguninn klukkan hálf átta, með plötuna í vasanum, ekki slæmt það svona mörgum árum seinna, enda verð ég alltaf stolt af þessari plötu.

Við systurnar vorum að velta því fyrir okkur í gær hvað ég gæti kallað það ástand sem ég er í þessa dagana og verð í eitthvað fram á sumar.

Málið nefninlega er að ég hef alltaf verið ólétt (þeas of þung)

Alltaf verið ófrísk (þeas mjög gallað eintak á alla kanta)

Oft er ég með barni (á systurdóttir sem ég eyði miklum tíma með, fyrir utan alla vinnu með börnum)

Oft er ég þunguð (á það til að þyngjast annaðslagið, óþægilegur fylgikvilli þess að vera feitur)

Og gott fólk sjaldan er ég nefninlega kona einsömul (er mjög sjaldan ein)

Við systur komumst að þeirri niðurstöðu að ég er með vaxandi fóstur í leginu, ekki alveg eins þjált og hin orðin eða setningarnar sem að koma til greyna en venst ótrúlega fljótt.

 

Jæja ætla að fara að finna mér eitthvað gáfulegt í gogginn, sem gæti samanstaðið af uppþvottalegi með smá "dashi" af t.d. lakkrís....... maður  er skrítinn í matarvali þessa dagana

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

elska þig sæta..

verðum að fara að hittast sæta mús

love

Tinna 

Tinna (IP-tala skráð) 20.2.2008 kl. 17:22

2 Smámynd: Kittý Sveins

hahah... þú ert svo æðisleg :)

Já það er erfitt að finna rétt nafn á okkur þunguðu konurnar..

En ég held mig við þessi venjulegu orð..

Já og talandi um matarvalið.. var að horfa á næturvaktina í gær (I know ég er sein) og þar var verið að borða EITT SETT og ég byrjaði daginn notla á því að fara í bónus og kaupa mér eitt sett!!! ahahha.. maður er svo klikkaður!!

Kittý Sveins, 21.2.2008 kl. 13:18

3 Smámynd: Jens Guð

  Ég hlakka til að hlusta á spjallið (sennilega samt í endurflutningi vegna þess að ég get ekki vaknað svona snemma).  Ég hef tvívegis verið viðmælandi Markúsar á Útvarpi Sögu.  Hann er afskaplega þægilegur spyrill.  Hann er líka búinn að nefna á blogginu mínu áhuga fyrir því að diskurinn þinn verði spilaður á Útvarpi Sögu.  Enda passa lögin á disknum vel við tónlistarstefnu þeirrar útvarpsstöðvar. 

  Ég skal vekja athygli á viðtalinu á ÚS á blogginu mínu.   

Jens Guð, 24.2.2008 kl. 02:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ylfa Lind Gylfadóttir

Höfundur

Ylfa Lind Gylfadóttir
Ylfa Lind Gylfadóttir

Þúsundþjalasmiður að eigin sögn og bráðverandi mamma

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • P1010395
  • P1010399
  • P1010398
  • 349.do
  • 346.do

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband