23.2.2008 | 01:19
Ég skrítin, eða þátturinn??
Var að horfa á þátt á ÍNN sem er einhver svona ný sjónvarpsstöð sem ég kíkji stundum á og hef oftar en ekki ansi gaman af, en ég verð að viðurkenna að áðan þegar ég var að horfa á þáttinn hjá Kolfinnu og Ásdísi sem samanstendur venjulega af nokkrum brjáluðum konum að gjamma hver ofan í aðra, (hreinlega elska brjálaðar konur) þá var ég aftur og aftur að grípa sjálfa mig við það að fara að gjamma ofan í þær og ræða við þær hérna úr sófanum hjá mér, á það til að gera þetta líka annaðslagið þegar ég horfi á Silfur Egils þó svo að ég hafi yfirleitt afar takmarkaða vitneskju um hvað gengur á í þeim þáttum, ætli það skrifist ekki á hversu illa upplýst ég er.... hmm.....
En allavegana ég mæli með þessum þáttum hjá stelponum á ÍNN, virkar fyrst eins og grúppa af fólki að öskra á hvert annað, en um leið og maður kemst inn í umræðuefnið þá er þetta ótrúlega skemmtilegur þáttur.
Eitt sem ég hef líka svolítið verið að spá í svona fyrst ég er að röfla um sjónvarp.... Eftir að ég varð ehh... í því ástandi að vera með vaxandi fóstur inni í leginu á mér, (alltaf jafn þjált) þá hefur skapast einhver leti í mér, og ég held mig yfirleitt heima hjá mér um helgar, afhverju í ósköponum er aldrei neitt í sjónvarpinu á föstudags og laugardagskvöldum, jújú það er alveg eitthvað í gangi svona fram undir það að það er búið að borða kvöldmat og koma gemlingnum á heimilinu í háttinn en svo situr maður uppi með hvað? FJANDANS BATCHELOR og eitthvað álíka uppbyggjandi og skemmtilegt sjónvarpsefni, eins og þátt sem samanstendur af einhverju fólki sem var saman í skóla fyrir guð má vita hvað mörgum árum síðan og er enn biturt út í þann sem það fór með á "promið" HVAÐ ER ÞAÐ???
Er bara alveg bannað að vera heima hjá sér um helgar nema að steikja á sér hausinn í lélegu raunveruleikasjónvarpi? Ég veit að þarna er ég kanski að kasta stein í glerhúsi þegar kemur að því að ræða raunveruleikasjónvarp en ég neita að trúa því að ég hafi verið SVONA lélegt sjónvarpsefni!!
Er hætt að nöldra
Um bloggið
Ylfa Lind Gylfadóttir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ahahahahah.. já sjónvarpsefnið er einstaklega leiðinlegt um helgar.. og ekki skárra hina dagana.. það er bara heppni ef að maður finnur eithvað skemtilegt að horfa á!!!
Kittý Sveins, 23.2.2008 kl. 15:30
Gaman að "sjá" þig hér!! Og til hamingju með vaxandi fóstrið!!
Kveðja frá selfossi...
Vigga hans Tobba..... (IP-tala skráð) 23.2.2008 kl. 19:56
Þú varst flott á Útvarpi Sögu.
Jens Guð, 27.2.2008 kl. 01:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.