Hvað nú?

Ég hef doldið verið að fá viðbrögð við plötunni minni Petite Cadeau sem ég gaf út haustið 2005, einhver hefur verið að velta nafninu fyrir sér, nafnið kemur frá systurdóttur minni sem var skýrð daginn eftir Útgáfuna og heitir sú litla táta Júlía Líf Cadeau og þar sem hún var og er ljósið mitt þá skýrði ég plötuna eftir henni.

Það sem ég er mest hissa yfir eru viðbrögðin, ég vissi allann tíman að platan mín væri góð, ég hafði bara enga hugmynd um það að ég hefði átt einhvern þátt í því, á þessum tíma leit ég eiginlega ekki á mig sem tónlistarmann, heldur eiginlega bara svona....... stelpu sem slysaðist í Idol, tónlistaráhugamanneskju á háu stigi, ég hafði ekki hugmynd um hvað keppnin snerist þegar ég skráði mig í keppnina og svo einhvernveginn bara flaut ég með.

Ég hef líka fengið að heyra að fólk hefði viljað sjá frumsamið efni á plötunni, ástæðan fyrir því að það var ekki var einfaldlega sú að ég var ekki viss um að ég vildi gefa út plötu, vildi ekki vera Idol keppandi lengur, og svona horfði á ferilinn hjá fyrrum keppendum og sá að þetta var leiðin, gefa út sæmilega ábreiðuplötu og hverfa svo.

Í dag lít ég á mig sem tónlistarmann, ég hef rosalegann áhuga á tónlist, ég vil vinna við tónlist, og ég sé að sjálfsögðu að auðvita hefði ég átt að skella mér í djúpu laugina og senda frá mér frumsamið efni, en maður getur alltaf verið vitur eftir á er það ekki?

Eftir að ég gaf plötuna út, seldist hún eiginlega ekki neitt, ég og útgáfufyrirtækið vorum ekki alveg á sama máli, og satt að seigja var ég ekki að trúa því að ég gæti komist eitthvað áfram sem tónlistarmaður, ég einhvernveginn var bara rosalega sátt við að eiga þessa líka fínu plötu upp í skáp.... svona er maður skrýtinn.

Ég hef ákveðið að hætta þessari vitleisu, ég ætla að skoða lögin sem ég á, og svona kíkja eftir hvort ég eigi eitthvað af viti, því að guð veit að ég kýs ekkert frekar en að vinna við tónlist aftur.

Að lokum vil ég þakka Jens fyrir að kveikja ljósið í þröngsýna heilanum mínum, og eins þeim sem kommentað hafa á síðuna hans um mig, það er ótrúlega þæginlegt að lesa svona skrif um mann á síðu hjá manni eins og Jens sem veit um hvað hann er að tala.

Haha ég sagði við Markús sem tók við mig viðtal á Útvarp Sögu að ég myndi gefa út plötu þegar Sverrir Stormsker væri tilbúinn í að gera hana með mér, ég ætla ekkert að halda niðri í mér andanum yfir því hehe

Eitt enn þessi blessaði tónlistarspilari vill ekki taka við lögonum hjá mér af einhverjum ástæðum, þarf að fá tölvufróða manneskju til að aðstoða mig við þetta, því ég er eins og ég seigi oft "tæknilega þroskahömluð" og því ræð ég ekkert við þetta verkefni en um leið og ég finn einhvern til að grúska í þessu fyrir mig þá redda ég þessu, býður sig einhver fram???

Þannig að hér með óska ég eftir Umba, tónlistarmönnum og fyrst of fremst FJÁRMAGNI hehe til að skella saman í kokteil og dúndra fram plötu


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jens Guð

  Náungi sem heitir Jói á Selfossi hringdi í mig áðan til að fá leyfi til að birta umsögn mína um plötuna þína á heimasíðu hans,  www.123.is/sissap.  Þar birti hann umsögnina undir "blogg".

  Jói á poppsafn sem hann sýnir við hátíðleg tækifæri.  Hann hefur líka verið með útvarpsþætti þarna fyrir austan fjall.

Jens Guð, 27.2.2008 kl. 23:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ylfa Lind Gylfadóttir

Höfundur

Ylfa Lind Gylfadóttir
Ylfa Lind Gylfadóttir

Þúsundþjalasmiður að eigin sögn og bráðverandi mamma

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • P1010395
  • P1010399
  • P1010398
  • 349.do
  • 346.do

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband