13.3.2008 | 23:37
Aðeins mildari
Ekki eins brjáluð og í fyrri færslu, var eitthvað orðin þreytt á þessu ástandi, aðeins of þreytt að sumra mati.
Sigga vinkona kom í mat í kvöld, mér tókst að kveikja í eins og nokkrum stykkjum af kínarúllum, átta mig á því að ég ætti ekki hrísgrjón og skítredda málonum með frönskum á alveg met tíma ofan í hana, henni fannst það fínt.....ég held að hún fái sjaldan almennilegann mat greyjið.
Eyjó er svo í mat á morgun, alltaf svo kósý að fá hann yfir, sérstaklega þegar ég get tekið endalausa "nú geturu ekki þetta eða hitt af því að við erum að fara að eignast barn" brandara á hann (hann á ekkert í þessu barni, en bregður alltaf jafn mikið, alveg óborgarlegt)
Mér fannst samt ekkert skemmtilegur tilgangur símtalsins sem ég fékk frá honum í dag, þetta var hans árlega "Eigum við ekki að fara að panta miða á Hróaskeldu?" símtalið, mér fannst hann ekkert fyndinn (verð að öllum líkindum að fæða eins og eitt stykki barn um þetta leiti)
En við ákváðum að skoða Rufus Wainwrigth tónleikana alvarlega í staðinn, þarf að fara að athuga með hvernig er að ná miðum, finnst eiginlega svindl að missa bæði af honum hér heima og svo Judas priest á keldunni, það er eiginlega pínku ómannúðlegt á minn hlut finnst mér.......
Hið árlega Raufarhafnardjamm á laugardaginn, aldrei datt mér í hug þegar ég staulaðist dauðadrukkin út af því síðasta að ég yrði edrú og ólétt á því næsta, en svona er lífið óútreiknanlegt
Annars skil ég ekki alveg tilganginn með þessu bloggi hjá mér, hef ekkert til að nöldra yfir, hef aldrei neitt að seigja nema að ég geti nöldrað aðeins, sjetturinn ef ég eignast mann, ætli hann geti farið í mál við mig seinna meir fyrir að ná honum ekki upp vegna stöðugs nöldurs eins og Ítalinn eða hvaðann hann var???? Bömmer
Um bloggið
Ylfa Lind Gylfadóttir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Æj þú ert endalaust mikið krútt! Langar bara að knúsa þig... Langar að fara að hittast... Ert þú ekki geim í það? :)
Kv Díana
Díana (IP-tala skráð) 13.3.2008 kl. 23:50
Velkomin í bloggvinahópin minn hafðu ljúfa helgi
Brynja skordal, 15.3.2008 kl. 10:20
Hæ skvís, skilaðu kveðju til hans pabba þíns frá Röggu á BSR. Takk fyrir að vera bloggvinur
Ragnheiður , 15.3.2008 kl. 10:39
Gleðilega páska og hafðu það gott
Brynja skordal, 20.3.2008 kl. 09:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.