24.3.2008 | 23:29
Stelpnafræðarinn
Rakst á bók í hilluni hjá mér áðan, einhver arfleið frá systur minni, en það voru ekki ómerkari bókmenntir en stelpnafræðarinn sem var einhver allra mesta nauðsyn unglingsstúlku greinilega á sínum tíma, rosalega gaman og pínku kjánalegt að lesa en mæli aaaalveg með henni, sérstaklega "Hvernig á að klæða sig smekklega" kaflanum
Lenti í doldið (ó)skemmtileri lífsreynslu um daginn, var að njóta þess að sofa út í makindum mínum og allt í einu hringir síminn hjá mér og það er frænka mín, ég svara hálfsofandi í símann og frænka mín öskrar á mig, "ertu ekki að horfa á rúv kona? Það er þáttur um Kim Larsen" og ég svona "ehh.....ha já ég fer á fætur" og ég rýk inní stofu með slefið enn út á kinn og stýrur í augum, þar eru systir mín og Júlía að horfa á teiknimyndir, ég hendi barninu frá sjónvarpinu, ríf fjarstýringuna af systir minni skipti um stöð ooooooooog átta mig á því að ég á þáttinn á spólu og búin að horfa á hann hundrað sinnum, þetta var svona tilfinning eins og maður hafi vaknað allt of seint á alveg roooosalega mikilvægann fund....mjög óþæginlegt
Var að horfa á endursýningu á þættinum er grín G-vara, eða hvað hann heitir, og þó svo að þátturinn hafi nú verið svona og svona, þá fannst mér alveg rosalegt sannleikskorn í einu sem þar kom fram, en það er að Edda Björgvins eldist rosalega vel í gríni, þeas gamalt grín frá henni virðist alltaf vera fyndið, mín skoðun allavegana.
Tók fysta alvöru geðsveiflukastið mitt í dag á þessari meðgöngu minni, systur minn til mikillar gleði, ég toppaði systurdóttur mína aaaalgerlega í frekjuköstum í dag, þannig að hún þurfti að díla við okkur báðar, en það lagaðist allt þegar hún hafði matað mig á ruslfæði og leift mér að opna síðasta páskaeggið til að borða innan úr því, stelpugreyjið verður flutt úr landi áður en ég veit af, miðað við hvernig þetta var hér í gamla daga, þeas, þegar ég var barn var ég mikið í svæfingum og þar sem ég hafði farið í aðeins of margar, þá var geðvonskan í mér svo mikil alltaf ís vona þrjár vikur eftir hvert skipti að systkyni mín þurftu yfirleitt að fara að heiman
Ég sem er svo geðgóð......
Um bloggið
Ylfa Lind Gylfadóttir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.