15.4.2008 | 15:53
Svaðalegur djammari!!!
Já gott fólk, Ylfa Lind Gylfadóttir skellti sér á djammið um helgina... ótrúlegur dugnaður alltaf hreint, og það sem ég uppskar á þessu djammi mínu var þynnka.....hvernig í ósköponum ég náði mér í svoleiðis er mér gersamlega framandi, gæti hafa verið samúðarþynnka og svo tókst mér svo vel til að ég get varla gengið út af grindargliðnun sem er rosalega skemmtilegt fyrirbæri, sérstaklega þegar maður býr á fjórðu hæð, engin lyfta og maður kemst ekki niður stigana!!! Eeeen hún mamma mín er svo góð að sækja littlu skottu hennar systir minnar á leikskólann þannig að áhyggjurnar eru úti
Bróðir minn var svo góður að eftirláta okkur forláta pleisteisjón 2 tölvu, þar sem hann var að fá sér sama apparatið nema bara númer þrjú, þannig að nú er ekkert annað að gera heldur en að ráðast á draslið og reyna að skilja hvernig þetta virkar allt saman, eitthvað kom hann með af leikjum líka sem að hans mati eru iddijót prúvt en ég er ekki viss um að ég sé sammála, miðað við mánuðina sem ég eyddi einhverntíma uppi á spítala með ekkert fyrir framan mig nema nintendo tölvu og super mario bros númer 1 og ALDREI komst ég yfir fyrsta borðið, ræð ekkert við svona drast af einhverjum ástæðum, en maður reynir og lærir er það ekki?
Við erum búin að vera netlaus í viku, hringdum í símann áðann og komumst að þeirri niðurstöðu að það þyrfti að ýta á einn takka á roudernum og þá væri allt í lagi, held að konan í símanum hafi álitið okkur fífl...... ekki frá því
Um bloggið
Ylfa Lind Gylfadóttir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
hehehehehe kannast við hluti sem eiga að vera Idiodprúf en eru svo langt frá því að mínu mati. Vona að allt gangi vel hjá þér..
Sigurbjörg Guðleif, 15.4.2008 kl. 17:23
hehe já þessi "pleisteisjón" er allgjör sniiild.. ég gæti nú komið og kennt þér nokkrar brellur elskan hehe verst er að ég myndi ekkert hleypa þér meira að;)
alltaf þegar ég heyri í þér og Önnu með tengingar á sjónvörpum og því um líku... eins og þetta með roderinn... að þá hugsa ég alltaf sterklega... þær eru SVO ELSKULEGAR... og á svona tíðum... skammast ég mín af hafa látið mig hverfa úr sambúð með ykkur ehehehehe;)
p.s. eitt með þessa síðu þína... það er eitthvað sem kallast ruslpóstvörn... og það eru REIKNINGSDÆMI og oftar en ekki hef ég rangt fyrir mér.. búin að gera 3 núna þegar ég bæti þessu við
Elva BESTA frænkan;) (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 21:17
Sigurbjörg: Já það eru ótrúlegustu hlutir sem að almannaáliti eiga að vera idíjót prúf en eru það bara alls ekki að mínu mati
Elva Björk: Ég get nú bara alveg frætt þig á því góða að ég kom draslinu í samband og kann að kveikja á því OG horfa á dvd, er ekkert reyndar að skilja í þessum leikjum en það kemur....... Og já þó svo að þú búir ekki hér lengur þá þarftu samt að sinna snúru-og tengingarmálum það er alveg á hreinu góða mín
Í sambandi við ruslpóstvörnina, já Elva mín við getum ekki verið klár á öllum sviðum, þú ættir kanski að halda þig við snúrurnar
Ylfa Lind Gylfadóttir, 17.4.2008 kl. 01:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.