Afrekaði

Að fara að grenja yfir þessu myndbandi af öllum

http://youtube.com/watch?v=4iTcKR4_dTg

Jább ég seigji það og skrifa, af einhverjum ástæðum fannst mér þetta myndband, sem ég hef nú samt séð ótalsinnum oft áður alveg rosalega fallegt og viti menn fór að hágrenja

Þeir sem þekkja mig eiga margir hverjir eftir að fá hjartaáfall þegar þeir lesa það að ÉG hafi farið að grenja því eins og góð vinkona mín sagði, þá er ég hugsanlega bældasta manneskja á jörðinni og höndla einfaldlega ekki svona tilfinningasemi

En þetta hafði nú samt alveg einstakt skemmtanagildi fyrir mig, því þetta er ekki í fyrsta skipti upp á síðkastið sem ég felli tár algerlega að óþörfu og eftir á finnst mér það ALLTAF jafn fyndið!!

Hormónar eru skemmtilegir!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já manni vöknaði soldið um augun.  Hann er náttúrulega æðislegur söngvari.  Og litli strákurinn með táknmálið, algjört krútt.

Hafðu það bara gott mín kæra

Hrefna (IP-tala skráð) 21.4.2008 kl. 00:36

2 identicon

Eitthvað minni mig að ég eigi kannski heiðurinn af þessari bælingarkenningunni.

En agalega fallegt lag. Þú þarft ekki að skammast þín fyrir að hormónaskæla yfir henni, ég fékk svona hormónatímabil eftir að ég átti, var ekki svo slæm meðan ég var ólétt, en þá grét ég yfir bleyjuauglýsingum og bílaauglýsingum , af því að landslagið var bara svo fallegt ,, ég gat ekki hlustað á falleg lög , fór bara að grenja, þú getur ýmindað þér hvað gerðist þegar ég heyrði Söknuð með Villa, sem maður grenjar nú bara venjulega við, Asíuflóð my as.

 Annars finnst mér ég ekki vera að standa mig í heimsóknartímum þessa dagana,, þarf að fara að kíkja á ykkur áður en ég dey úr samviskubiti ,,, er sko að mála hérna heima :) 

þar til næst mín kæra kiss kiss 

Kristrún Ýr Einarsdóttir (IP-tala skráð) 21.4.2008 kl. 21:45

3 identicon

Mikael Jónsson er náttla bestur þrátt fyrir umdeild... en já þú ert alveg eðlileg grenju skjóða, ég hef aldrei verið ólétt en fór einu sinni að grenja yfir "My best friend wedding" eins og ekkert væri eðlilegr, svo var einhver tísku þáttur á stöð 2 um daginn og það bara opnaði eitthvað flóð, og þá heldur hafði ég aldrei verið ólétt, svo þú séð, þú ert bara óskup eðlileg grenjuskjóða eftir allt saman ;) má nú ekki kenna hormónum og óléttu um allt ;) hahahahaha

Sigga Rafns (IP-tala skráð) 22.4.2008 kl. 01:08

4 Smámynd: Ylfa Lind Gylfadóttir

Hrefna: Alveg rétt hjá þér

Kristrún: Rétt þú átt allann heiðurinn af bælingarkenningunni..... og JÁ þú þarft að fara að kíkja í heimsókn með þitt hafurtask

Sigga: Mikjáll Jakobsson eins og ég kýs að kalla hann er nokkuð góður, haha þegar ég var að lesa kommentið frá þér mundi ég óljóst eftir því þegar ég fékk þig til að fara að grenja yfir ekki ómerkari mynd heldur en Armageddon, mannstu eftir því?  En já fyrst þú viðurkennir að þú sért almennt grenjuskjóða, þá verð ég að viðurkenna það upp á sjálfa mig líka, hvað er að gerast? Aldurinn??

Ylfa Lind Gylfadóttir, 22.4.2008 kl. 15:12

5 identicon

Ja ekki vissi ég að þú værir byrjuð að blogga aftur það gleður mig þokkalega

En ég var að lesa fyrri færslu um óléttu og kvart og kvein í sambandi við það Hehe ekki það að ég skilji þig elskan þar sem ég er ólétt og bara finn ekkert fyrir því nema vera komin með stóra bumbu sem ég bara get ekki sogið inn!!!

Samt máttu sko alveg kvarta enda rosa gölluð og hefur ekki verið sú hraustasta í gengum tíðina.... Samt skil ég þig smá að nenna þessu ekki lengur enda bara ekkert svakalega gaman að vera óléttur alls ekki misskilja ég er glöð að fá barnið mitt og allt það en halló maður má ekkert og þarf að passa sig geggjað mikið og bara svaka vesen og getur ekki einu sinni djammað

 Úff missti mig aðeins í pirri pirr.... hehe

Eva Dögg (IP-tala skráð) 22.4.2008 kl. 17:52

6 identicon

Mækol er flottastur..

En ji mín kæra ylfa.. ár og öld síðan síðast og þú preggó og greinilega hormónar á millíón..  gottú sí that! :)

Hlakkar til að sjá þig á ríúníoni :)

Kveðja frá köben 

Ásta (IP-tala skráð) 22.4.2008 kl. 19:35

7 identicon

Ylfa ég sá einn 6 vikna í dag ,,,,,,,,,, ég fór næstum að grenja,,,,,,,,,,,,,, hann var svo lítill og svo sætur og ég ætla svo að kremja barnið þitt sundur og saman og klípa í kinnarnar, þannig kannski ég ætti ekki að koma nálægt honum fyrr en hann er orðin allavega ársgamall !!!

Kristrún Ýr (IP-tala skráð) 22.4.2008 kl. 19:52

8 Smámynd: Ylfa Lind Gylfadóttir

Eva Dögg: Haha já maður er oft aðeins of pirraður, og þá er rosalega gott að bara geta skrifað það niður og pústað... og gvöð minn góður hvað ég vona að þér líði vel, enda afhverju ekki, þú ert nú svo hraust og vonum að það haldist!!

Ásta: Sjáumst á ríúníoninu heldur betur, þar sem ég ætla að vera búin að planta mér í þæginlegann stól og rífa kjaft allt kvöldið, enda tala ég svo hátt að ég þarf ekkert að labba á milli fólks

Kristrún Ýr: Ég get nú alveg frætt þig á því að þar sem börn hingað til og nefni ég Júlíu Líf sem dæmi hafa lifað hana Elvu Björk frænku mína af, þá held ég að það sé allt hægt, alltaf verið mest hissa á því að barnið sé ekki klesst út á aðra kinnina!

Ylfa Lind Gylfadóttir, 22.4.2008 kl. 22:26

9 identicon

ég þarf að fara ð koma í heimsókn elskan..

sorry að ég komst ekki í gær/ fyrradag...vinafólkið kom síðan um leið og ég ætlaði a fara að koma mér og ég þurfti að skutla marinó og strákunum niður í bær..

ég reyni að kikja um helgina elskan..með stólinn :)

love you

Tinna (IP-tala skráð) 25.4.2008 kl. 09:55

10 Smámynd: Kristrún Heiða Þórarinsd Busk

hehe ylfa Lynd ekki einusinni ég gat grenjað yfr þessu myndbandi þá er nú mikið sagt hehe en vonandi gengur allt frábærlega bara svona eins og þér einni er lagið ;)

 kv Frk Busk

Kristrún Heiða Þórarinsd Busk, 27.4.2008 kl. 21:58

11 identicon

Það er komið að öðrum bumbuhitting sem við verðum að drífa af áður en sumar fara að gjóta:)

Kaffi Aroma í hafnó á laugardaginn kl 13... Má ekki sleppa koma!!!!

Eva Dögg (IP-tala skráð) 1.5.2008 kl. 18:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ylfa Lind Gylfadóttir

Höfundur

Ylfa Lind Gylfadóttir
Ylfa Lind Gylfadóttir

Þúsundþjalasmiður að eigin sögn og bráðverandi mamma

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • P1010395
  • P1010399
  • P1010398
  • 349.do
  • 346.do

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband