5.5.2008 | 00:35
Þjóðkirkjan!!
Er það satt að þar sem ég er skráð í þjóðkirkjuna (vegna leti við að skrá mig úr henni) verður barnið mitt þá "átómatískt" skráð í þjóðkirkjuna við fæðingu?
Og ef svo er þá AFHVERJU Í ANDSKOTANUM? Hver leifði það?
Þó svo að ég sé í þjóðkirkjunni, þá er það ekki mitt að ákveða trúarfélag fyrir barnið mitt og hvað þá einhverrar manneskju sem vinnur í pappírsvinnu upp á fæðingardeild
Hvað ef faðirinn er ekki í þjóðkirkjunni? Fer þá enginn að spyrja spurninga?
Hvern er ég eiginlega að spyrja þessara spurninga?...........Veit það ekki, en ef einhver getur svarað mér þá væri það fínt takk fyrir!!!
Annars er ég farin að skammast mín fyrir hvað ég er léleg við að blogga....
Það bara er einhvernveginn voðalega lítið að gerast.... ég er komin eitthvað um 31 viku á þessari óléttu minni, man bara aldrei hvað ég er komin langt, kanski er ég bara léleg mamma af því að ég veit ekki upp á dag alltaf hvað ég er komin langt haha
Er líka búin að átta mig á því (að sjálfsögðu ekki fyrr en ég er sjálf að fara að verða móðir) að það eru held ég bara allir lélegir foreldrar... ég held að öll börn hafi eitthvað slæmt um sitt uppeldi að seigja á einhverjum tímapunkti í lífinu.......hvernig komst ég að þessu? Jú ég var að lesa umræður á barnalandi þar sem allar mæður eru nefninlega vondar mæður, það er nefninlega alveg sama hvað einhver seigir eða er að spyrja út í, niðurstaðan er alltaf sú að viðkomandi er hræðileg mamma, þá fór ég að hugsa.
En að sjálfsögðu erum við öll misslæmir foreldrar, en ég held að enginn geti verið fullkomið foreldri......ég ætla bara sjálf að reyna að vera svona ehhh...... allavegana skítsæmilegt foreldri, þeas hætta að vera taugaveikluð.
Ætla bara að vona að barnið mitt verði ekki eins klikkað og ég var á unglingsárum, held ég hafi ekki taugarnar hennar mömmu til að díla við það hahaha
Jæja ég bloggaði þó...... þó svo að það hafi kanski ekki verið mikið af viti og doldið svona hér og þar
Um bloggið
Ylfa Lind Gylfadóttir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ef ég man rétt; eftir að hafa lesið svar við álíka spurningu sem kom fram fyrir nokkrum árum síðan þegar mikil alda af úrsögnum úr þjóðkirkjunni gekk yfir vegna yfirgangs þjóðkirkjunnar gagnvart öðrum trúarbrögðum:
"Barn er skráð í þann trúflokk sem móðir er skráð í við fæðingu, nema sérstaklega sé beðið um annað [fyrir fæðingu (minnir mig)]."
Langt er síðan ég las þetta svo frásögn mín er byggð á gloppóttu og gömlu minni, þannig að taktu þetta með fyrivara. Taktu viljann fyrir verkið.
Kveðja, Björn bóndi.
Sigurbjörn Friðriksson, 5.5.2008 kl. 01:43
Jámm... en afhverju ÞJÓÐ-kirkja??
Ríkisvædd Kirkja er eitt og sér bara brandari
Hommalega Kvennagullið, 5.5.2008 kl. 02:41
Björn bóndi: Takk fyrir upplýsingarnar, ég athuga þetta, kanski get ég komið með beiðni um að þessu verði sleppt
Birkir: Don´t get me started on this one!!
Ylfa Lind Gylfadóttir, 5.5.2008 kl. 08:16
Þetta er rétt hjá Birni bónda, barnið er átómatískt sett í sama trúfélag og móðir þess, pabbanum kemur þetta greinilega ekkert við
Berglind Inga, 5.5.2008 kl. 20:12
Þjóðkirkja er ekki það sama og ríkiskirkja og Þjóðkirkjan er ekki ríkiskirkja. Sorry. Leiðinlegt að valda ykkur vonbrigðum en þannig er það bara.
Markús frá Djúpalæk, 5.5.2008 kl. 20:14
heyrðu.. heyrst hefur að Rakel sé þessi líka fullkomni foreldri , ekkert út á hana að setja , híhí, en þessi trúarmál, veit ekki allveg, nu er ég í óháða söfnuðinum en Björn bóndi í þjóðkirkjunni svo kannski fáum við bara óháðan þjóðkirkjuhöfðingja
Rakel Jóna (IP-tala skráð) 5.5.2008 kl. 20:58
? en þjóðkirkjan okkar ER ríkiskirkja.... sem er eiginlega point-ið sem var verið að koma að, að það er kjánalegt á 21. öld ... á íslandi ... þar sem enginn trúir neinu ... ekki einu sinni 20.00 fréttum .... hvað þá að láta sjá sig í kirkju á sunnudögum....en þeir dagar eru notaðir í að blóta yfir hausverk sem myndaðist vegna syndsamlegs athæfis........ ....... ... hvað vorum við aftur að tala um?
Sigga Rafns (IP-tala skráð) 5.5.2008 kl. 22:30
BARA MINNA ÞIG Á HVERJU ÞÚ LOFAÐIR MÉR...
VIÐ ERUM AÐ VERÐA MÓÐIR EKKI BARA ÞÚ...
EN VONANGI GENGUR ALLT VEL ELSKAN....ÞÚ HRINGIR BARA EF ÞIG VANTAR EITTHVAÐ EÐA ÉG GET GERT EITTHVAÐ
Tinna (IP-tala skráð) 6.5.2008 kl. 16:40
Svona er þetta víst. Við erum bara hundar og ekki spurð að neinu.
Halla Rut , 7.5.2008 kl. 11:07
elsakn mín þú bara segir konuni sem útbýr fæðingarskíslurnar þínar um að setja barnið ekki átómatíst í þjóðkirkjuna það á ekki að vera nokkuð vandamál og það að þú skulir ekki muna hvða þú ert komin langt þá bara segiru að þú eigir að fæða á afmælisdaginn minn manstu það þíðir ekkert að ætla að hætt við það núna sko ;) en ef maður er vond mamma bar af því að maður man ekki nákvæmlega hvða maður var komin margar vikur þegar maður var spurður þá hlít ég líka að vera vond mamma ég mundi þetta aldrei ;)
kv frú busk
Kristrún Heiða Þórarinsd Busk, 7.5.2008 kl. 11:39
Ég geri ráð fyrir að Markús sé að vitna í 62. grein stjórnarskrárinnar sem er svohljóðandi: 62. gr. Hin evangeliska lúterska kirkja skal vera þjóðkirkja á Íslandi, og skal ríkisvaldið að því leyti styðja hana og vernda.
Það er hins vegar alveg ljóst að þessi söfnuður er rekin í einu og öllu af íslenska ríkinu og kostaður af því. Og því má með réttu tala um ríkiskirkju. Það er meira að segja þannig að við sem ekki erum í þjóðkirkjunni þurfum að þola það að þegar hún þarf meiri pening en sóknargjöldum nemur (s.s. á hverju einasta ári) þá restin tekin af allri þjóðinni. Þetta fær engin annar söfnuður á Íslandi. Hvað þá að við sem stöndum utan safnaða fáum að halda peningnum eftir. Við fáum reyndar ekki einu sinni að halda eftir sóknargjöldunum.
En Ylfa, þetta er einfalt mál. Skráðu þig bara úr þjóðkirkjunni, þá þarftu ekkert að pæla í þessu
Egill Óskarsson, 17.5.2008 kl. 01:54
Já ég þarf að drattast upp af rassgatinu og gera það við fyrsta tækifæri Egill, ekki eins og það sé flókið mál, maður er svo bara mikill skussi hehe
Ylfa Lind Gylfadóttir, 17.5.2008 kl. 01:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.