Flutt að heiman

Jebb þá er ég nefninlegast flutt að heiman á virkum dögum allavegana til að byrja með, og þvílíkur munur að geta komist út undir bert loft hvenar sem ég vil, þeas eitthvað svona aðeins merkilegra heldur en hérna út á svalir, og ekki versnaði það þegar ég áttaði mig á því að nú eru að koma próf í grunnskólum þannig að ég hef nóg að gera við að láta börnin hennar Lóu frænku minnar (sem situr uppi með mig eins og er) læra fyrir próf, það finnst henni Ylfu litlu ekki leiðinlegt!

En ég þakka svörin við fyrri færslu, er búin að átta mig á því hvernig ég held ég hagi þessu öllu saman.

Furðuleg lífsreynsla í gær.... Sigga vinkona mín kom í heimsókn, og við ákváðum að horfa á laugardagslaga þætti sem við fundum á skjá símanns, og Sigga hló og hló af mér því nú hafa hlutverk okkar vinkvenna aldeilis snúist við, áður var það þannig að þegar horft var á eitthvað svona þá sat ég og hraunaði yfir ALLT sem fór fram á skjánum, og voru það miður falleg orð sem voru látin falla um keppendur, klæðnað, tónlistina osfrv.

Í gær aftur á móti þá var ég voðalega mjúk eitthvað, fannst hinn og þessi bara allt í lagi...... og svona og var alltaf að reyna að vera voðalega kurteis eitthvað og passa mig á því að vera nú ekki að seigja neitt ljótt..... og nú er Sigga vinkona föst á því að ég sé nú bara orðin allt of aumingjagóð og ég sé hreynlega farin að vorkenna greyjonum..... hún bíður spennt eftir því að barnið komi út frá mér svo ég geti verið kaldhæðin og leiðinleg aftur, svo að hún geti bara hlustað á mig og verið sammála haha

Kanski verður maður svona mjúkur á því að vera tilvonandi mamma, vona samt að það fari fljótt af mér!! Ég hef virkilega gaman nefninlega af því að vera lágkúruleg og gagnrínin svo að það nær út fyrir allann þjófabálk......EN ef einhver eða eitthvað sem ég sé er virkilega gott þá er ég heldur ekkert að fela það.

Eins og t.d. það að ég skal alveg viðurkenna það hér og nú að ég var að hlusta á brot frá Jesus Christ Superstar úr Borgarleikhúsinu og verð að hrósa stúlkunni sem söng fyrir Maríu Magdalenu!! Hvar í fjandanum fundu þeir þessa stelpu??? Þetta var roooooosalegt hjá henni!

Sko ég á þetta til


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

hallo...

 hafdu engar ahyggjur, thu verdur alltaf sama manneskjan i minum augum :)

 og ja eg kiki i kaffi thegar eg kem, thu verdur ad vera buin ad eiga tha!

Jona (IP-tala skráð) 21.5.2008 kl. 09:26

2 Smámynd: Kristrún Heiða Þórarinsd Busk

jæja vínkona þú verður að halda í þér það er ekki eins og það sé langt í afmælisdaginn min kona góð ;)

Kristrún Heiða Þórarinsd Busk, 21.5.2008 kl. 23:53

3 identicon

Það góða við það hvað þú getur verið orðljót og gagnrýnin á ákveðna hluti er að maður tekur einmitt mark á fallegu orðunum þínum. Hins vegar kunni ég alltaf vel við "vegir guðs eru órannsakanlegir"  í okkar rökræðum meðan á sambúð okkar stóð. 'Eg held þetta sé ekki spurning um að vera aumingjagóð heldur að fara fínna út í hlutina, og hakka svo í alvöru það sem á það skilið,,, mamma kallar þetta að þroskast. eg er nú svo orðljót enþá að ég þarf örugglega að unga út tvíbbum til að  laga það.

Kristrún Ýr Einarsdóttir (IP-tala skráð) 22.5.2008 kl. 12:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ylfa Lind Gylfadóttir

Höfundur

Ylfa Lind Gylfadóttir
Ylfa Lind Gylfadóttir

Þúsundþjalasmiður að eigin sögn og bráðverandi mamma

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • P1010395
  • P1010399
  • P1010398
  • 349.do
  • 346.do

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband