22.5.2008 | 22:36
Kristilegt siðgæði
Eða bara siðgæði?
Oft fæ ég að heyra þegar ég nefni að ég sé ekki hrifin af kristnifræðikennslu í grunnskólum,að kristni sé þjóðartrú á Íslandi, þeas að flestir séu kristnir og þessvegna eigi að kenna kristnifræði sérstaklega í grunnskólum, og einnig fæ ég líka að heyra að börnin verði að læra kristilegt siðgæði.
Ok gott og vel en ég hef spurningar
Afhverju þarf svona upplýst þjóð eins og Íslendingar nauðsynlega að hafa þjóðartrú? Nú hef ég ekkert á móti kristinni trú og tel mig bara svona passlega trúaða sjálfa, en ég sé ekki afhverju maður getur ekki bara stundað sína kristni í sínu horni, skil ekki að þetta þurfi að vera einhver yfirlýst trú á Íslandi og sé ekki þörfina.
Er einhver sérstakur munur á kristilegu siðgæði og bara siðgæði almennt? Vantar eitthvað inn í almennt siðgæði sem finnst bara í kristni?
Annars má alveg kenna kristni fyrir mér, svo lengi sem önnur trúarbrögð eru jafn mikið í hávegum höfð.
Fékk að sjá blað sem frænka mín sem fermist næsta vor fékk sent heim frá kirkjunni út af fermingarfræðslu sem hún þarf að mæta í fyrir fermingu, og þar er lögð sérstök áhersla á það að börnin geri sér fyllilega grein fyrir því afhverju þau ættu að láta ferma sig og afhverju ekki, þeas skýrt er tekið fram að ferming sé ekki nauðsynleg og að það þurfi að hugsa sig sérstaklega um ástæður þess að láta ferma sig, var mjög svo ánægð með það.
Um bloggið
Ylfa Lind Gylfadóttir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
hmm ég spyr bara, eiga bara óupplýstar þjóðir að hafa þjóðartrú? Ekki það að ég sé einhver talsmaður fyrir því að við eigum að hafa þjóðartrú, mér er í raun alveg sama. Þegar þú talar um kristilegt siðgæði ertu þá að meina siðferðisleg gildi sem ríkja í samfélaginu? Eru sömu gildin í kristnum samfélögum og samfélögum sem hafa önnur trúarbrögð? Nú eru til fjöldamörg trúarbrögð í heiminum í dag, á að kenna þau öll? Hvar á draga mörkin? Hver ætlar að ákveða hvaða trúarbrögð skulu kennd en hvaða trúarbrögð ekki? En í fjölmenningarsamfélögum, eins og ísland er að breytast í, á auðvitað að kenna fleiri trúarbrögð en bara kristni, en hey er það ekki nú þegar gert? En við höfum ekki bara lært kristni, höfum við ekki lært líka um ásatrú í skóla? En er þetta ekki bara svipað og landafræði og íslandssaga? Við lærðum um önnur lönd í landafræði en um Ísland í Íslandssögu, við lærum önnur trúarbrögð í trúarbragðafræði en ríkjandi trú á íslandi í kristnifræði?
Annars er endalaust hægt að velta sér upp úr trúmálum án þess að fá nokkurn tíman svör
Lína Hreiðasd (IP-tala skráð) 23.5.2008 kl. 18:09
Já mér finnst það merki um að vera óupplýst þjóð að þurfa nauðsynlega að setja alla inn í sama dálk.
Ég er einmitt að spá í því afhverju siðgæði þarf að vera tengt trúarbrögðum, ekki bara almennt siðgæði.
Já mér finnst að það eigi að kenna öll trúarbrögð, ég tók trúarbragðafræði í grunnskóla og það var hið skemmtilegasta fag, annað mátti seigja um áralanga kristnifræðikennslu, en auðvita er smekkur manna misjafn.
Mér finnst þetta einmitt það sama og landafræði og Íslandssaga, þeas trúarbragðafræði, mér finnst meiri lærdómur í því heldur en kristnifræði, mér finnst þetta kanski einhver þörf breyting, heldur frekar þróun, við erum alltaf að þróa hin fögin er það ekki? Mér finnst kristnifræði kanski ekki skaðleg börnum, (auðvita ekki) en kanski meira gagn af hinu.
En ég er sammála því að það sé hægt að velta sér endalaust upp úr trúarbrögðum og aldrei fær maður svör, en þó gaman að velta þessu fyrir sér annað slagið.
Ylfa Lind Gylfadóttir, 23.5.2008 kl. 21:06
Vá alltaf þungt blogg fyrir mig!!!! En ég er nú bara fegin að við séum ekki múslimar....
Ætlaði annas bara að kvitta fyrir mig:)
Eva Dögg (IP-tala skráð) 24.5.2008 kl. 10:14
Gott að þér líður vel með það Eva :o)
En þeta átti að vera "mér finnst þetta kanski EKKI einhver þörf breyting"
Ylfa Lind Gylfadóttir, 24.5.2008 kl. 10:18
Siðgæði hefur ekkert með kristna trú að gera. Alveg eins og Eurovision hefur ekkert með tónlist að gera....
Taxi Driver, 24.5.2008 kl. 13:13
Nákvæmlega það sem ég var að spá Baldur
Ylfa Lind Gylfadóttir, 24.5.2008 kl. 14:59
Mér finndist nú aldeilis fínt að börnun væri kennt að hafa meiri trú á sjálfan sig, bera umburðarlyndi fyrir örðum, OG EITT HVAÐ VARÐ UM KURTEISI,, ég held að sonur minn sé eini kurteisi krakkin í bekknum sínum, ( segi ég auðvitað ) en vá hvað börn eru dónaleg, og leiðinleg, og bera enga virðingu fyrir fullorðnum, þetta þærri honum Magnúsi afa ekki gott.
Svo hefði stafetningarkennsla mín mátt vera betri ( eða ég betri námsmaður)
en meðan hver og einn tekur afstöðu til trúmála á sínum forsendum get ég ekki séð að það skipti mála hvort það sé þjóðtrú ríkistrú eða önnur trú, að trúa er eitthvað sem maður finnur hjá sjálfum sér ekki ríkinu og ekki kirkjunni.
Kristrún Ýr Einarsdóttir (IP-tala skráð) 24.5.2008 kl. 23:23
jæja það er bara alltaf eins og að fara á samkoma eins og koma hér inn á þessa trúarsíðu , ég vil bara vita hvernig gengur í bumbunni?
Rakel Jóna (IP-tala skráð) 26.5.2008 kl. 15:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.