Iðnaðarmaður???

Eitthvað er það við barnið því ekki er hann að drífa sig í heiminn, er doldið ekki að nenna þessu!!

Prufaði að hoppa aðeins í gær, það var léleg hugmynd, það var barasta ekkert gott þegar belgurinn hlunkaðist niður, eeeeeeen það má alltaf reyna!!

Hér er allt á hvolfi vegna breytinga, sem ég að sjálfsögðu tek engann þátt í, horfi bara á eins og fífl, og ég er ekki frá því að mér dauðleiðist bara, er búin að vera óþolandi í allann dag að reyna að finna mér eitthvað að gera og ég hef bara enga eyrð (eirð?) í nokkurn skapaðann hlut, þannig að ég er bara svona mest í þvi að vera leiðinleg, og að leika hver er undir teppinu með Júlíu Líf..... spennandi

Jú ég á mér eitt hobbý þessa dagana en það er að borða, og þá meina ég ómannlega mikið, ég er að gúffa í mig svona sex sinnum á dag, sem er í raun ekkert nema heilbrigt, ef það væri ekki fyrir það að ég er að troða í mig heilli máltíð sex sinnum á dag, ég held ég hafi barasta aldrei borðað svona mikið um æfina, og hef ég nú yfirleitt geta troðið vel í mig, s.b. vaxtarlag mitt!!

Svona fimm mínotum eftir hverja máltíð þá átta ég mig á því afhverju ég ákvað eftir síðustu máltíð að við þá næstu skyldi ég hemja mig, júbb því að þá mætir brjóstsviði á svæðið, ógeðslega þægjó, sérstaklega þar sem til eru brjóstsviðalyf fyrir óléttar kellur, og það eru til lyf fyrir nýrnasjúklinga, en það er ekki í boði að vera bæði ólétt og nýrnasjúklingur HVAÐ ER ÞAÐ??? Þannig að ég treysti bara á lgg+ sem reynir af öllum mætti að aðstoða mig, en gengur orðið hægt, enda ekki furða miðað við matarvenjur.

Júlía er með hlaupabólu, sem hún kallar spólur, er gersamlega þakin greyjið, en þær eru nú eitthvað að hjaðna hjá henni, helvítis spólurnar!!

Jæja ætla að reyna að hlunka þessum haugum hérna á fætur, svo að ég geti látið leiðindin mín bitna á þeim muhahaha!!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

þrátt fyrir leiðindin þín heima fyrir þá hafði ég mjög gaman af þessu bloggi ef það er einhver huggun, svo er í tísku að ganga framyfir settan fæðingardag svo þú ert bara í tískunni

Rakel jó (IP-tala skráð) 11.7.2008 kl. 17:37

2 Smámynd: Ylfa Lind Gylfadóttir

Já það er mikil huggun skal ég seigja þér Rakel mín, mesta huggunin er þó að vera í tískunni hehe

Ylfa Lind Gylfadóttir, 11.7.2008 kl. 18:22

3 identicon

hae hae

eg hugsa tikl tin ahverjumdegi herna ur hitanum....vonandi fer tetta ad enda og litli gaur ad koma i heiminn...

heyrums elskan fljotlega

kvedja ur hitanum a tenerife

Tinna B og marino

Tina (IP-tala skráð) 12.7.2008 kl. 20:05

4 Smámynd: Kittý Sveins

Hæ skvís..

Vonandi ferðu að smella í gang.. ég gekk 10 daga fram yfir og það var ekkert spes ;)

Gangi þér vel í átökunum.

Kv Kittý og Eyvindur Sveinn

Kittý Sveins, 13.7.2008 kl. 18:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ylfa Lind Gylfadóttir

Höfundur

Ylfa Lind Gylfadóttir
Ylfa Lind Gylfadóttir

Þúsundþjalasmiður að eigin sögn og bráðverandi mamma

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • P1010395
  • P1010399
  • P1010398
  • 349.do
  • 346.do

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 907

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband